|
sunnudagur 18. júlí 2010 |
|
GASGAS er nú að byrja að kynna 2011 módelin frá fyrirtækinu. EC línan kemur nú með rauðu stelli, nýju frambretti og framljósi. Nýjir 48mm SACHS framdemparar eru nú á hjólinu. Einnig hefur kælikerfi hjólsins verið betrumbætt. Endurohjólin sem komið hafa á Mitchelin dekkjum koma nú á Metzeler Six Days Extreme dekkjum. Fleiri nýjungar hafa verið gerðar eins og endurbættur blöndungur í tvígengishjólunum, nýr keðjusleði, lengri startsveif ofl. Sjá myndir af EC 250 hér í myndabanka.
|
|
|
sunnudagur 4. júlí 2010 |
Kári Jónsson. #46
|
Önnur umferð Íslandsmeistaramóts í motocrossi fór fram á Álfsnesbrautinni við bestu mögulegu aðstæður. Brautin var í sínu besta ásigkomulagi og veðurguðinn lék við viðstadda. Allir sem komu að standsettningu brautarinnar og keppnishaldinu eiga bestu þakkir fyrir. Mikil og skemmtileg barátta einkenndi alla flokka og buðu keppendur uppá frábæra skemmtun með snildar baráttu og akstri. TM Racing knaparnir Kári jónsson #46 og Haraldur Örn Haraldsson #29 ásamt pitturum og grúppíum Voru að sjálfsögðu á staðnum og tóku þátt í keppninni. Haraldur #29 er á sínu fyrsta ári í unglingaflokk og stóð sig með sóma, tæknilrg mistök í pitt komu í veg fyrir að frammistaða hans í seinni umferð væri skráð. Enduró kóngurinn Kári #46 hikstaði eitthvað í fyrri umferðinni en endaði þar sjötti sem er nú kanski ágætt útaf fyrir sig þar sem hann keyrir lítið í krossbrautum nema ef þær eru partur af braut í Endurókeppni. Í seinni umferð náði Kári blússandi starti og greinilegt að enduró grimdin var komin upp í honum. Kári keyrði fanta vel og vann sig upp í annað sæti á eftir Aroni Ómarssyni sem hann hélt uns tveir hringir voru eftir er hann drap á hjólinu og missti James og Gylfa frammúr sér og endaði fjórði.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
þriðjudagur 6. júlí 2010 |
Hjörtur L. Jónsson.
|
Husquarna TE 410 (Husky) árgerð 1997 sem var stolið í 2. júní s.l. fyrir utan hús í
Ásgarði 53 í Reykjavík hef enn ekki komið í leitirnar. Eigandi hjólsins er Hjörtur "líklegur" sem allir
hjólamenn þekkja. Þeir sem hafa einhverja vitneskju um hvar það er að
finna eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Hjört í síma 694
9097 eða við lögregluna í síma 112.
Þetta hjól er Hirti mikils virði en
hann hefur ekið því yfir 35 þúsund kílómetra um Ísland í 13 ár. Allir
hjólamenn vita hvað það þýðir að eiga sér uppáhalds.
|
|
|
þriðjudagur 22. júní 2010 |
|
TM ökumaðurinn Kári Jónsson sigraði með yfirburðum á Íslandsmótinu í Enduro sem fram fór á Akureyri um síðustu helgi. Kári var fyrstur alla keppnina og kom í mark tveimur og hálfri mínútum á undan næsta manni.
Björgvin Sveinn Stefánsson varð annar og Daði Erlingsson hafnaði þriðji.
Veðrið lék við keppendur fyrir norðan og brautin var fín. Motocross.is og Mr. Hard sögðu líka frá keppninni. Fullt af myndum eru komnar í myndabankann hér á síðunni. Smellið hér til að skoða myndirnar.
|
|
|
þriðjudagur 22. júní 2010 |
|
Vorum að fá sendingu í hús af Sweep mótorhjólafatnaði. Nýjir götuhjólagallar frá Sweep, jakkar, buxur, hanskar og skór. Hlífar eru í öxlum, olnbogum og baki á jökkunum. Eins á mjöðmum og hnjám á buxunum. Vatnsheld og vindheld hægðavara frá Finnlandi. Auðvelt er að renna fóðri innanúr ef það er heitt. Einnig er hægt að renna jakkanum og buxunum saman.
|
|
|
mánudagur 21. júní 2010 |
Christophe Nambotin. |
GASGAS ökumaðurinn Cristophe Nambotin sigraði fyrri daginn í Enduro World Championship keppninni sem haldin var í Puchov í Slóvakíu um síðustu helgi. Á eftir Nambotin komu þeir David Knight og Guillaume. Hins vegar náði Nambotin ekki að sigra seinni daginn og hafnaði hann í fjórða sæti.
Það var Knight sem hampaði sigrinum og nú er Enduro 3 flokkurinn erfiðari en nokkru sinni fyrr.
Það var fleira sem gladdi GASGAS keppnisliðið þegar Robert Kvarnström sigraði á laugardag og sunnudag í 125 2T flokknum. Keppnin World Championship mun halda áfram 28. ágúst í Tyrklandi. Meðfylgjandi er staða ökumanna í heimsmeistarakeppninni í E3 flokknum.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
föstudagur 18. júní 2010 |
|
Shoei V-Moto.
Tilboð kr. 39.000.-
|
Shoei V-Moto.
Tilboð kr. 49.000.-
|
Shoei V-Moto.
Tilboð kr. 49.000.
|
|
EVS Takt. Tilboð kr. 24.900.-
|
Shoei Raid II. Tilboð 48.930.-
|
Shoei Raid II. Tilboð 48.930.-
|
Jhm Sport býður nú Shoei og EVS hjálma á frábærum tilboðsverðum. Shoei V-Moto hjálmar. Bæði fyrir Motocross og Enduro. Þessir hjálmar eru til í öllum stærðum og gerðum.
Einlitir á tilboði kr. 39.900.- en voru á kr. 56.390.-. Skrautlegir Shoei hjálmar á tilboði kr. 49.900.- en voru á kr. 75.289.- EVS
Takt Motocrosshjálmur á tilboði kr. 24.900.- en kostuðu áður kr. 49.800. ATH aðeins nokkrir hjálmar
eftir.
Shoei Raid II götuhjólahjálmar. Nokkur sýningareintök á 30%
afslætti. Fullt verð kr. 69.900.- Nú á tilboði kr. 48.930.-
|
|
|
fimmtudagur 3. júní 2010 |
Hjólið sem stolið var af Hirti. |
Husquarna TE 410 (Husky) árgerð 1997 var stolið í gær fyrir utan hús í Ásgarði 53 í Reykjavík. Eigandi hjólsins er Hjörtur "líklegur" sem allir hjólamenn þekkja. Þeir sem hafa einhverja vitneskju um hvar það er að finna eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Hjört í síma 694 9097 eða við lögregluna í síma 112. Þetta hjól er Hirti mikils virði en hann hefur ekið því yfir 35 þúsund kílómetra um Ísland í 13 ár. Allir hjólamenn vita hvað það þýðir að eiga sér uppáhalds.
Tilkynningin frá Hirti er svo hljóðandi:
"Í dag var Husqvarna TE410
´97 mótorhjólinu mínu stolið fyrir utan Ásgarð 53.
Hjólið er ekki mikils virði í peningum, en hefur mikið tilfinningarlegt
gilfi
fyrir mig þar sem að ég er búin að eiga hjólið í 13 ár og keyra það yfir
35.000
kílómerta þetta er eina hjólið á landinu sem lítur svona út og er með
Husky-límmiða. Ég sendi mynd af hjólinu, en í dag var hjólið með svart
framljós
og ekki neinar handahlífar."
|
|
|
fimmtudagur 27. maí 2010 |
|
Nokkrar myndir eru komnar inn á vefinn frá Endurokeppninni sem haldin var á Kirkjubæjarklaustri síðastliðna helgi.
Smelltu hér til að skoða myndirnar í myndabankanum.
|
|
|
föstudagur 21. maí 2010 |
MYND/Lolla
|
Jhm Sport á til mikið af varahlutum í allar gerðir af hjólum.
- Legusett frá All Balls.
- Hágæðakeðjur frá RK.
- Dekk frá Pirelli og Metzeler.
- Bremsuklossa og borða frá DP
- Hágæðaolíur
Gerðu klárt fyrir Klaustur og komdu við hjá okkur í Jhm Sport.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 Næsta > Endir >>
|