|
Bike Point segir GasGas EC 515 það besta sem framleitt er |
|
|
|
mánudagur 10. maí 2010 |
Bike Point reynsluekur GASGAS EC 515 4T. |
Ástralski mótorhjólagagnrýnandinn Bike Point segir á heimasíðu sinni að GasGas EC 515 sé besta Endurohjólið sem framleitt er í dag. Fer gagnrýnandinn skref fyrir skref yfir allt hjólið, hvernig það er smíðað, hvernig það virkar og hvernig er að aka því. GasGas hefur verið að framleiða og þróa Endurohjól með beinni innspýtingu (EFI) í sjö ár núna og var fyrst allra framleiðenda til að setja beina innspýtingu í Endurohjól.
Nú hafa flestir japönsku framleiðendurnir ásamt Husqvarna, Sherco og Aprilia, hafið að setja EFI í sín hjól líka. GasGas er einnig brautryðjandi í að vera með EFI án batteríis, svokallað Battery-less system. Rafgeymirinn hefur þannig það hlutverk að þjóna ljósum, rafstarti og rafkerfi hjólsins. Reyndar er vel hægt að fjarlægja rafgeyminn og samt er hægt að setja hjólið í gang og aka því segir Bike Point.
Um 515 vélina segir gagnrýnandinn. "Þessi 515 vél hefur nóg tog til að senda mann á sporbraut umhverfis jörðina. Aflið er sterkt og kvikt. Brekkur? Hvað brekkur? Láttu hjólið klifra, snúðu uppá rörið og brekkan hverfur undir Gasserinn." Sjá greinina alla hér.
|