|
GASGAS kynnir 2011 línuna |
|
|
|
sunnudagur 18. júlí 2010 |
|
GASGAS er nú að byrja að kynna 2011 módelin frá fyrirtækinu. EC línan kemur nú með rauðu stelli, nýju frambretti og framljósi. Nýjir 48mm SACHS framdemparar eru nú á hjólinu. Einnig hefur kælikerfi hjólsins verið betrumbætt. Endurohjólin sem komið hafa á Mitchelin dekkjum koma nú á Metzeler Six Days Extreme dekkjum. Fleiri nýjungar hafa verið gerðar eins og endurbættur blöndungur í tvígengishjólunum, nýr keðjusleði, lengri startsveif ofl. Sjá myndir af EC 250 hér í myndabanka.
|