|
þriðjudagur 4. maí 2010 |
Davide Gozzini ekur á TM Racing 450i.
|
Hún var góð byrjunin hjá ökumönnum TM Racing Factory liðsins á hinni hröðu Castelletto di Branduzzo braut á Ítalíu. Keppnin er sú fyrsta á þessu tímabili sem keppt er til heimsmeistara í Supermoto.
Davide Gozzini hafnaði í öðru sæti eftir gríðarlega harða keppni um fyrsta sætið við Aprilia ökumanninn, Thierry Van Den Bosch. Í þriðja sæti hafnaði Thomas Chareyre á TM Racing Factory 450i. Gozzini sagði að lokinni keppni að hann hafi ekki verið sáttur við sjálfan sig að hafa ekki sigrað fyrrum ökumann TM Racing, Van Den Bosch, sem hann hefði átt að gera því yfirburðir TM hjólsins voru slíkir en ekki dugir að sigra eitt hít af þremur.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
sunnudagur 2. maí 2010 |
|
Ramon Puente framkvæmdastjóri hjá GASGAS verksmiðjunum hefur tilkynnt nokkrar breytingar sem gerðar hafa verið á 2011 línunni hjá GASGAS. Nú koma hjólin með Renthal stýri og Öhlins TTX afturdempurum.
Framleiðandinn vonast til þess að með þessum breytingum muni GASGAS mæta kröfum markaðarins um framúrskarandi góð GASGAS Enduro hjól.
|
|
|
mánudagur 3. maí 2010 |
Endurokappar teyma hjólin yfir stórgrýti á meðan aðrir hjóla yfir þær. Enduro Cross Country. | Ný tegund Enduro keppni, ECC eða Enduro Cross Country, verður haldin í Jósepsdal 8. maí n.k. Jhm Sport hvetur alla Endurokappa til að taka þátt. Hægt er að skrá sig og lesa keppnisreglur og flokkaskiptingu hér. Brautin nú er léttari og því kannski hraðari en áður.Þessi tegund af Endurokeppni býður ekki upp á eins krefjandi torfærur og tíðkast hefur hér á landi. Þó eru Cross Country keppnir stundum afar erfiðar erlendis eins og myndin með þessari frétt ber með sér. Þurfa keppendur oftar en ekki að teyma hjólin yfir erfiðustu þrautirnar. Jhm Sport á allt sem viðkemur keppnum sem þessum; dekk, legur, olíusíur, tannhjól, bremsuklossa, fatnað o.mfl. |
|
|
föstudagur 30. apríl 2010 |
Antonio Cairoli.
|
Það kemur ekki á óvart að Pirelli dekkjaframleiðandinn heldur áfram að sigra í Motocrosskeppnum. Ekki fer neitt að milli mála að Scorpion dekkjalínan er ansi vinsæl meðal þeirra bestu.
Pirelli sigraði í öllum þremur flokkunum í fyrstu umferðinni sem haldin var í Búlgaríu og sigraði fjórum flokkum á Grand Prix Lombardia. Pirelli Scorpion MX var einnig sigursælt á Grand Prix í Hollandi þar sem land. Þökk sé Antonio Cairoli í MX1, í MX2 Herlings Jeffrey og Svíinn Mats Nilsson sem keppti í Veteran’s World Cup.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
laugardagur 24. apríl 2010 |
|
Það er alltaf gaman að lesa síðuna hjá Mr. Hard eins og hann kallar sig. www.hardenduro.tk. Svo virðist sem hann geri ekkert annað en að hjóla á Enduro slóðum eða hamast í Trial klifri á milli þess sem hann skrifar hnittnar færslur á síðuna sína. Á síðunni hjá Mr. Hard er líka skemmtilegur fróðleikur og góð ráð um hjólamennskuna í sínum víðasta skilningi.
Í færslunum hans eru oft góð ráð gefin um akstur og viðgerðir en hægt er að skrifa við hverja færslu sína skoðun eða spyrja kappann einhverra spurninga. Alltaf fylgja myndir með skrifunum, hvort sem hann skrifar um keppnir erlendis eða slóðaakstur hér heima. Við hvetjum alla áhugasama að kíkja við hjá Mr. Hard.
|
|
|
laugardagur 24. apríl 2010 |
Rodrig Thain sigraði í heimsmeistara-
keppninni í E2 flokknum á TM EN 450Fi. Keppnin var haldin á Spáni 11. apríl s.l.
|
Það er stórkostlegt fyrir TM Racing er að ná svo góðum árangri í stórmótum gegn stóru framleiðendunum eins og sést hér í eftirfarandi upptalningu. Heimsmeistarar í Supermoto 2009, sigurvegarar í þrem af sex flokkum í Six-Days 2009, í top þremur í WEC E2 og Topp tíu í WMX1.
Kostir TM Racing er að þau eru hönnuð og prófuð við erfiðistu aðstæður
og betrumbætur skila sér samstundis í framleiðslu hjólanna. Fyrir þá sem
eignast TM Racing er að eignast hjól sem má segja að sé "Rollsinn" í
hjólunum.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
laugardagur 13. mars 2010 |
|
JHM Sport býður viðskiptavinum sínum Metzeler og Pirelli krossdekk á
frábæru verði. Allar gerðir dekkja fyrir keppnina eða ferðalagið. 20%
aflsáttur af Pirelli og Metzeler dekkjum.
Verðdæmi: Pirelli Scorpion MX. Stærð: 100/90-19. Verð 11.851.-
Tryggðu þér frábær dekk í tæka tíð á meðan byrgðir endast.
|
|
|
laugardagur 10. apríl 2010 |
|
Max Nagl
|
Antonio Cairoli |
Marvin Musquin |
Það voru sannarlega frábærir sigrar sem lönduðust um síðustu helgi fyrir dekkjaframleiðandann Pirelli á Grand Prix í Búlgaríu í fyrstu keppni af fimmtán á heimsmeistaramótinu í Motocross.
Þessir sigrar ítalska framleiðandans komu skemmtilega á óvart sem enn og aftur sannar að Pirelli Scorpion MX dekkjalínan er framúrskarandi góð fyrir bæði Motocross og Enduro keppnir.
Pirelli Scorpion MX, MidSoft 32, voru notuð í MX1 af fyrstu sex ökumönnunum en sigurvegarinn í MX1 var Max Nagl en í öðru sæti hafnaði Antonio Cairoli eftir hörku keppni við Nagl. Í MX2 var það Marvin Musquin sem sigraði sinn flokk. Í Women's World Championship var hin þýska Stephanie Laier sem fór með sigur af hólmi á Pirelli Scorpion MX. Smellið hér til að sjá Max nagli í MX1 og hér til að sjá Marvin Musquin í MX2.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
fimmtudagur 1. apríl 2010 |
|
Keppnislið Enduro og Trial árið 2010.
|
Carles Ferrer, keppnisstjóri hjá GASGAS, sagði á kynningu GASGAS að: "Það er flókin keppnisvertíð framundan en við höldum áfram að veðja á keppnirnar. Við framleiðum hjól fyrir keppnir, það er það sem við höfum alltaf gert hjá GASGAS og það hefur einkennt okkur".
Varðandi breytingarnar sem hafa verið kynntar á GASGAS mótorhjólunum fyrir árið 2010 segir Ferrer að: "Við höldum áfram að þróa hið fullkomna hjól byggt á skoðunum og reynslu hvers ökumanns, en alltaf með þekkingu vélfræðinga okkar sem hafa gefið okkur svo marga sigra á undanförnum árum."
Makmið okkar hjá fyrirtækinu eru skýr: "Við viljum sigra í Enduro og í Trial og til að ná þeim markmiðum verðum við að hafa bestu ökumennina sem geta náð þessum markmiðum".
GASGAS hefur ráðið nýjan markaðstjóra Alex Llobet. Hann sér um að vörumerkið GASGAS festi sig í sessi í samkeppninni um viðskiptavininn. "Við erum með nýja leið til viðskipta sem betur tengir við viðskiptavini okkar og sýna að GASGAS er jákvætt vörumerki og er í varanlegri þróun".
|
|
|
miðvikudagur 31. mars 2010 |
Christophe Nambotin með aðstoðarmönnum. |
Keppnislið GASGAS fyrir árið 2010 mun samanstanda af Cristophe Nambotin, Yannick Bossi, Jordi Figueras, Ludivine Puy, Robert Kavarnström og Arnau Sola. Cristophe Nambotin byrjar á einni uppáhaldskeppni sinni "World Enduro Championship" og þá tekur hann þátt í "French Championship" þar sem hann mun keppa í Enduro 3.
Á þessu ári mun Yannick Bossi örugglega standa sig vel í "Junior World Championship" og einnig í "French Championship" þar sem hann mun taka þátt í Enduro 2. Mikil spenna og eftirvænting hefur myndast í kringum Jordi Figueras sem sumir segja að verði öðrum "opinberun" þegar hann keppir á Spanish Championship og í World Championship þar sem hann tekur þátt í Enduro 2.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 Næsta > Endir >>
|