Hjóli stolið
fimmtudagur 3. júní 2010
hjortur-hjolHjólið sem stolið var af Hirti.
Husquarna TE 410 (Husky) árgerð 1997 var stolið í gær fyrir utan hús í Ásgarði 53 í Reykjavík. Eigandi hjólsins er Hjörtur "líklegur" sem allir hjólamenn þekkja. Þeir sem hafa einhverja vitneskju um hvar það er að finna eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Hjört í síma 694 9097 eða við lögregluna í síma 112. Þetta hjól er Hirti mikils virði en hann hefur ekið því yfir 35 þúsund kílómetra um Ísland í 13 ár. Allir hjólamenn vita hvað það þýðir að eiga sér uppáhalds.

Tilkynningin frá Hirti er svo hljóðandi:
"Í dag var Husqvarna TE410 ´97 mótorhjólinu mínu stolið fyrir utan Ásgarð 53. Hjólið er ekki mikils virði í peningum, en hefur mikið tilfinningarlegt gilfi fyrir mig þar sem að ég er búin að eiga hjólið í 13 ár og keyra það yfir 35.000 kílómerta þetta er eina hjólið á landinu sem lítur svona út og er með Husky-límmiða. Ég sendi mynd af hjólinu, en í dag var hjólið með svart framljós og ekki neinar handahlífar."