Önnur umferð í Álfsnesi
Skrifað af Jón Hafsteinn Magnússon   
sunnudagur 4. júlí 2010
082 Kári Jónsson. #46
Önnur umferð Íslandsmeistaramóts í motocrossi fór fram á Álfsnesbrautinni við bestu mögulegu aðstæður. Brautin var í sínu besta ásigkomulagi og veðurguðinn lék við viðstadda. Allir sem komu að standsettningu brautarinnar og keppnishaldinu eiga bestu þakkir fyrir. Mikil og skemmtileg barátta einkenndi alla flokka og buðu keppendur uppá frábæra skemmtun með snildar baráttu og akstri. TM Racing knaparnir Kári jónsson #46 og Haraldur Örn Haraldsson #29 ásamt pitturum og grúppíum Voru að sjálfsögðu á staðnum og tóku þátt í keppninni. Haraldur #29 er á sínu fyrsta ári í unglingaflokk og stóð sig með sóma, tæknilrg mistök í pitt komu í veg fyrir að frammistaða hans í seinni umferð væri skráð. Enduró kóngurinn Kári #46 hikstaði eitthvað í fyrri umferðinni en endaði þar sjötti sem er nú kanski ágætt útaf fyrir sig þar sem hann keyrir lítið í krossbrautum nema ef þær eru partur af braut í Endurókeppni. Í seinni umferð náði Kári blússandi starti og greinilegt að enduró grimdin var komin upp í honum. Kári keyrði fanta vel og vann sig upp í annað sæti á eftir Aroni Ómarssyni sem hann hélt uns tveir hringir voru eftir er hann drap á hjólinu og missti James og Gylfa frammúr sér og endaði fjórði.
022 Haraldur Örn Haraldsson #29. 089 Aron Ómarsson #1 kemur í mark.
 118 115

Keppendum í 85cc flokk fer fjölgandi sem er alveg frábært þar hefur Guðbjartur Magnússon #12 nokkra yfirburði. Gaman að sjá Þorlákshafnarbúann Þorstein Helga koma sterkann inn og líklegan til að veita Guðbjarti keppni. Í kvennaflokki skiptust Karen og Signý á sætum frá því á Ólafsfirði. Signý býr yfir meiri hraða en hinar stelpurnar og nýtur þar örugglega góðs af þátttöku í heimsmeistaramótinu á síðasta ári. Verulega gaman að sjá hvað kvennaflokkurinn er orðin sterkur og mikið að efnilegum stelpum þar. Unglingaflokkurinn er geysilega skemmtilegur á að horfa, barátta um fyrstu sætin frá upphafi til enda. Björgvin Jónsson þar fremstur í flokki og lætur ekki koma sér úr jafnvægi þótt  Kjartann Gunnarsson, Gummi Kort Nikulásarson, Ingvi Björn Birgisson og Hinrik Óskarsson ofl.nagi í afturdekkið hjá honum. B  flokkur er æfing og stökkpallur uppí meistaraflokk þar vildi ég sjá fleiri keppendur. Að keyra +40 með honum er gott mál og ýtir þar við yngri mönnum að taka sig á. Mývetningar eru þar að þreifa sig áfram og stefna væntanlega upp í meistaraflokk. Meistaraflokkur (MX Open á útlensku) Þar hefur Aron Ómarsson afgerandi yfirburði yfir aðra keppendur sem hann að sjálfsögðu verðskuldar þar sem hann leggur mikið á sig við æfingar, dvelur m.a.í Evrópu við æfingar lungan úr vetrinum.


Gylfi Freyr Guðmundsson kemur sterkur inn eftir áralöng meiðsli, Hjálmar Jónsson virðist vera að koma aftur sterkur inn (Björgvin bróðir setur á hann pressu) Kári Jónsson stimplaði sig inn í seinni umferðinni með góðum akstri og sýndi að hann getur þetta alveg. MX2 gæjarnir Eyþór Reynisson,og Viktor Guðbergsson, áttu góða spretti sérstaklega Eyþór sem kom síðastur út úr startinu í seinni umferðinni og vann sig stöðugt upp og náði að landa sigri dagsins í MX2. Örn Sævar Hilmarsson og Jónas Stefánsson sigldu þetta öruggt. Þarna vantaði nokkra ökumenn sem eru frá vegna meiðsla Einar Sigurðarson, Gunnar Málara og Bjarka Sigurðsson. Vonandi batnar þeim fljótt svo þeir geti tekið þátt í fjörinu. Í bakgrunni af mynd úr startinu má sjá Eyþór í Rodeó stellingu þar sem hann svífur út úr braut ásamt að ég held Viktori. Man eftir Gylfa  þegar hann kom árið2002 og keypti af mér TM125, Aroni smá nagg sem vildi buxur og skipti þá engu máli þó þær væru nokkuð við vöxt hann var skæl brosandi með þær. Held reyndar að allir eldri strákarnir hafi verslað hjá mér þegar þeir voru að byrja í sportinu. Gamann að horfa á ykkur keyra strákar og stelpur.